fimmtudagur

Þegar hungrið sækir að...

Þegar ég var ólétt kom ég oft glorsoltin úr jógatíma og þurfti mat NÚNA og STRAX. Þannig uppgötvuðum við hjónin alveg hreint framúrskarandi stað í Borgartúninu (rétt hjá jóganu) sem heitir Súpubarinn. Með honum öðlast hugtakið bensínstöðvamatur hærra veldi og nýjar víddir því hann er inni á stöðinni þadddna...æi við gatnamótin.
Súpurnar eru margvíslegar, ítalska kjötbollusúpan er sennilega í uppáhaldi. Ekki skemmir fyrir að bólugrafnir unglingar koma hvergi nærri matseldinni heldur eru framreiðendur alveg sérstaklega natnir við vinnu sína og dreyfa rifnum osti yfir súpurnar eins og rósablöðum fyrir keisaraynju. Brauðið sem gjarnan er borið fram með súpunum er smurt af kostgæfni og ástríðu. Ég elska súpur, og þessar eru góðar.

1 Comments:

At 26/3/06 11:23 f.h., Blogger tótla said...

hehehe. Ég verð að tjekka á þessari súpu, þú ert ekki sú fyrsta sem bloggar sérstaklega um staðinn:)

 

Skrifa ummæli

<< Home