miðvikudagur

Hárlaus

Eftir að hafa googlað hair loss after pregnancy komst ég að eftirfarandi: Einn af fylgikvillum þess að fæða barn er að maður missir hárið. Ekki strax. Þetta byrjar svona 3 til 5 mánuðum eftir fæðingu og stendur yfir í allt að 3 mánuði. 50-60% kvenna verða fyrir þessum hræðilegu aukaverkunum. Ég er ein þeirra. Baðkarið er subbuleg hársúpa eftir bað og öll gólf eru eins og á hárgreiðslustofu. Ég bara meika þetta ekki lengur. Off with her hair! Ég ætla í klippingu og fá mér knallstutt.

3 Comments:

At 19/4/06 9:43 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Geturðu ekki safnað þessu saman að búið til góða hárkollu handa Guðna?

 
At 22/4/06 4:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hjá sumum byrjar þetta fyrir 3 mánuði :(

 
At 22/4/06 5:16 e.h., Blogger Hildur said...

mér skilst að þetta sé vegna brjóstagjafar, þar sem svo mikið af vítamínum fara í brjóstamjólkina en hefðu annars farið í að styrkja hárið. En hvað veit ég.

Taka Zinktöflur!

 

Skrifa ummæli

<< Home