laugardagur

Hér koma svo myndirnar
Þær eru ekki alveg í réttri röð...af hverju veit ég eigi. Og ég var ekki ástfangin af löggunni sem kemur fyrir á svona 10 myndum, hann var bara fyrir kóngafólkinu sem sést varla. Njótið vel. Hérna er hlekkurinn

fimmtudagur

DJ Ásdís on the klake
Í Danmerkurferðinni bar einna hæst nýji rússíbaninn í Tívoli, alveg eðalskemmtun. Einnig óvæntur fundur æskulýðsfélagsins við Margréti Danadrottningu, Hinrik (sem átti 70 ára ammli), syni þeirra tvo og tengdadætur. Við sáum þau hlaupa inn í eðalvagna eftir eitthvað húllumhæ. Svo var smörrebröd á Nýhöfn, angurvært tjill í Rósinborgargarðinum, gengið af sér fæturnir á Strikinu og sa videre. Virkilega vel heppnuð og skemmtileg ferð. Það er ætlun mín að birta myndir þær er ég tók á stafræna myndavél í ferðinni hér á síðunni.