fimmtudagur

Andlaus
Ég reyndi að blogga, en það var ófyndið og óáhugavert...þá er betra að bíða rétta tímans, ekki satt?

mánudagur

Old lang syne
Það er bara mánudagur en samt er ég farin að hlakka til helgarinnar. Á laugardag er nebblega komið að fyrstu endurfundum bakkjarfélaga minn úr Austurbæjarskóla. Það verður áhugavert að sjá hvernig ræst hefur úr fólki. Sumir voru bara pakk þarna í denn! En flest var þetta mikið sómafólk. Nú er bara að stinga myndum af spúsum/börnum/hundum/húsum/bílum/heimshornaflakki/háskólagráðum í veskið sitt og sjá hver hefur unnið lífsgæðakapphlaupið. Svo rifjum við líka upp gamlar kærastasögur og tölum misvel um kennara. Það verður gaman!