Ýktmegakúl! Eruði búin að sjá Dæmonen nýja rútsjíbanan í Tivoli. Hann opnaði 16. apríl síðastliðinn og ku vera góður. Að sjálfsögðu er æskulýðsfélag Hallgrímskirkju á leiðinni að prófa tækið.
Ræningjabæli Það er ljótt að stela. En sumu er ljótara að stela en öðru...eða hvað? Til dæmis fannst mér það einstaklega ljótt að heyra að einhver bíræfinn þjófur hefði rænt tveimur gömlum kertastjökum af kapellualtarinu í Hallgrímskirkju. Stela af altari! Annað eins hefur maður varla heyrt.
Umhugsunarvert Ég er að lesa ómarkverða bók sem hefur lítið til að bera annað en ágætis fléttu. En ein setning fannst mér þó nokkuð spök. "To hate is to value immensely." Að hata eitthvað gefur því mikið gildi. Rétt?
Heij Sá einhver Ragnheiði sögukennara í sjónvarpinu í kvöld. Eða voruð þið öll að horfa á Rebeccu Loos, meinta ástkonu Beckhams? Er Bekki ekki of einfaldur til að halda framhjá?